La famile de Huldubraut
Video
PHOTOS - ELÍ SMÁRI
03.11.2008 14:42:12 / soffiasa

Í leikskóla er gaman, það leika allir saman...

Úff óspennandi dagar að baki …Elí fékk gubbupest mánud.nótt 20/10 , ælandi líka þriðjud., miðvikud. var hann svo kominn með niðurgang, föstud. fór hann á leikskólann….föstud. nótt var ég svo komin með gubbupest, laugardag var ég alveg ónýt! Jóhann greyið kom heim laugard. morgun eftir næturvakt, svaf í klukkutíma og þurfti svo að sinna Elí því ég var var eins og barinn fiskur uppí rúmi. Reyndi svo að hressa mig við um hádegi og hugsaði með mér að smá göngutúr til að svæfa Elí myndi hressa mig við…virkaði ekki alveg, kom inn og Jóhann þurfti meira að segja að hjálpa mér úr skónum og uppí rúm. Við fórum sem sagt bæði að sofa og Valdís kom og bjargaði málunum og sá um Elí þegar hann vaknaði. Sunnud. morgun var ég enn slöpp og illt í maganum og lucky us...Elí kominn með gubbupestina aftur! Höfum ekki þvegið jafn mikinn þvott þessa vikuna frá því að Elí fæddist! Elí greyið er búinn að vera svo lystarlaus frá því að þetta byrjaði allt saman, borðar aðeins á morgnana en varla meira, og hann er búinn að grennast svo mikið :(  Þriðjudag töldum við okkur vera orðin safe og Elí kominn með matarlyst aftur, hámaði í sig mjólkurgraut á leikskólanum og pastarétt um kvöldið.... en allt út aftur rétt fyrir svefninn, nýorðinn hreinn eftir baðið! Og við sem vorum með Árna og Kristjönu í mat, what a memorable dinner for them! Ég held að mallinn hans hafi einfaldlega ekki höndlað allann þennann mat eftir að hafa verið hálf tómur í marga daga. Vona að þið séuð ekki komin með gubbuna uppí háls að lesa þetta! />

En yfir í skemmtilegri hluti... Elí elskar leikskólann sinn og vill helst ekki fara heim í lok dagsins, hann var enga stund að venjast því að sofa í herbergi með fullt af krökkum. Þarna er líka alveg frábært starfsfólk, t.d ömmurnar 2 sem hafa unnið þarna líklega frá því að leikskólinn opnaði, svo er einn 19 ára strákur sem er ótrúlega duglegur og Elí líkar mjög vel við (því miður er hann að hætta um áramót). Það er að sjálfsögðu mikið sungið með krökkunum og aðra hvora viku kemur líka tónlistarkennari sem syngur með þeim og spilar stundum með hljóðfæri, í lok nóv. fá foreldrar að koma og fylgjast með J Síðan Elí byrjaði á leikskólanum eru komnir ýmsir nýir taktar hjá honum en só far ekkert neikvætt, aðallega er hann farinn að tjá sig miklu meira, ekki alltaf hægt að skilja hvað hann er að segja en honum er greinilega mikið mál að tjá sig og segja frá öllu sem hann upplifir. Þegar við skreppum út í göngutúra, sem við gerum oft því Elí er nú búinn snemma á leikskólanum og eitthvað þarf maður nú að bralla, fyrir utan það þá á ég alltaf erfitt með að fá hann inn strax eftir leikskóla, en já... þá segir hann mér frá öllu sem hann sér á leiðinni, sérstaklega ef hann sér bíl eða strætó (sem er sem sagt vörubíll, strætó er bara rúta hjá honum :) Og meira gaman framundan, við ætlum nebbla að skella okkur á sundnámskeið með litla manninn, höfum verið allt of löt að fara í sund og það er alltaf gert eitthvað skemmtilegt á svona námskeiðum og gaman að hitta aðra krakka. />

Hvað með okkur skötuhjúin... ekkert svo sem nýtt eða spennandi, ég er eins og alltaf svaka skipulögð og dugleg á blaði en stend ekki við neitt! Bókasafnsferðirnar mínar hafa verið ansi fáar og þó svo ég sé búin að ákveða úr hvað bók ég ætla að þýða (fyrir B.A verkefnið mitt) þá er ég ekki búin að ákveða hvaða kafla og því miður ekkert komið niður á blað, ég hef bara engann sjálfsaga í þetta! Svo eru það nú ekki margir dagar sem ég kemst í mánuði á bókasafnið (fer eftir vöktunum hans Jóhanns) og þegar ég kemst er ég ekki alltaf upplögð, hef t.d alls ekki verið það í öllu þessu veikindarstússi! Æi ég nenni ekki að stressa mig á þessu, auðvitað væri gaman að vera búin með þetta en ég hef 3 ár til stefnu eftir að ég hef lokið námi og það er ekki eins og milljón dyr muni opnast mér með b.a í frönsku. Þannig að ég gef Elí allann minn tíma samvisku-bits-laust! Vildi frekar hafa aðeins meiri sjálfsaga í að drullast í ræktina! Við Ásdís höfum amk náð að fara 3 laugardaga í badbinton í okt, sem hefur ótrúlega hressandi fyrir líkama og sál :) />

Jóhann is all about the work... svo dútlar hann heima þegar hann hefur tíma, það á enn eftir að klára ganga frá og loka fyrir í kringum hurðina sem fer úr stofunni útí garð og hann er smám saman að vinna í því. Hann náði nú að fara í eitt partí í okt, þannig að það er enn líf í kallinum hehe... />

Hvað kreppu varðar þá er best að kafa ekkert of mikið í þau mál, nóg gert af því.... get þó sagt það að við reynum að lifa lífinu eins og áður með þó nokkrum skynsamlegum breytingum, eins og t.d segja upp stöð 2. Ekki það auðveldasta þar sem við höfum verið með stöð 2 í næstum 10 ár straight, sérstaklega þar sem Gray´s anatomy var að byrja! En það eru ýmsir góðir þættir á skjá 1 eins og Swingtown á sunnudögum, 30 rock á fimmtudögum og svo eru Dexter og Heros að byrja aftur :) />

Jæja vonandi nennir einhver að lesa ritgerðina mína, það er nú ekki oft sem ég skrifa! Ég mun fylgjast með kommentum haha! Og kíkja á október myndirnar á www.elismari.barnaland.is />

Bína skrifaði
hæhææ
það sem þú ert dugleg að skrifa. Hlakka til að sjá ykkur.
Elfa skrifaði
Þvílíkt og annað eins að lenda í svona pest, ég fæ sting í hjartað þegar ég hugsa um litla snúðinn spúandi öllu upp :( Annars mjög skemmtileg færsla Soffía og gaman hvað gengur vel í leikskólanum, kemur mér reyndar ekki á óvart því hann Elí er svo mikil félagsvera og orkubolti :) Bið að heilsa og stórt knús á Elí!!!
Alex skrifaði
Já ég dauð vorkenni ykkur með þessa pest, sem er eina ástæðan fyrir að ég nennti að passa þar sem ég var ný farin að sofa þegar þú hrigndir :P hehe. Ekkert var betra að hafa mömmu,ómar og anítu öll ælandi hjá mér seinustu helgi. Vorkenndi þeim samt meira en mér því ég virðist hafa sloppið við þennan fjanda. En ef þig langar svona gasalega að sjá grey's anatomy máttu svo sem bjóða þér hingað, ég nefnilega er ennþá með stöð2. Og hey, kannski við ættum að fara saman í ræktina...ég er að hugsa um að koma mér í form fyrir jólakjólinn. :) Verum í bandi. knús.
Kristrún skrifaði
Hæ sæta!! Það er aldeilis að fólk er veikt þarna í kringum þig úff púff og ekki skemmtilegasta veikin sem hægt er að krækja sér í hehe. gott að allir séu orðnir hressir aftur. Ég er annrs búin að senda þér email, senda skilaboð á facebookið þitt og senda þér sms en ég fæ engin svör sniff sniff. Það væri gaman að heyra í þér og þakka fyrir afmælisgjöfina og svona ;) knús frá Aarhus
Ásdís skrifaði
Jahérna það hefur verið stuð á ykkur eða þannig. En gott að heyra að allir séu að ná sér eftir þetta. Gaman líka að heyra að það gengur vel á leikskólanum :).
Við verðum að fara drífa okkur aftur í badmintonið þessi helgi klúðraðist eitthvað en spurning með í vikunni ég heyri í þér allavega.
Knús og kossar
mamma skrifaði
Gaman hvað Elí Smára finnst gaman í leikskólanum, ég átti reyndar ekki von á öðru hann er svo hress og duglegur strákur. Vonandi eruð þið svo bara búin með pestarkvótann fyrir næsta ár líka. :)
Bestu kveðjur og knús úr Stapó.
Halla Björk skrifaði

Æj æj æj þið hafið heldur betur fengið að finna fyrir pestinni. Ég fann þvílikt til með ykkur í öllum þessum sögum.

Við á heimilinu sluppum því betur fer við æluna en hita og beinverkjapestinn herjaði aldeilis á fólkið á heimilinu, reyndar utan við mig ég slapp.

Ætlið þið að kíkja e-ð norður yfir jólin, eða verður Jóhann í vinnunni?

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.